Sagan er af D-gerð, upprunalega samin á latínu af Arngrími Brandssyni um 1345.
„Dräpa. Hins Goda Herra Gudmundar Ara sonar biskups Er Ort hefur Herra Arne Aböte Jonſson ad Mvka þuerä“
„Hier effter fylgier …“
Drápan er 79 vísur hrynhendar.
Tvídálka að hluta (bl. 106r-110v).
Ein hönd.
Fastur seðill ()162 mm x 103 mm með hendi Árna Magnússonar: „Þessa bók hefi ég fengið af Þormóði Torfasyni, og var þá í bandi með annarri Guðmundar sögu og Jóns sögu Hólabiskups. Er skrifuð fyrir herra Þorlák Skúlason. “
Með hendi séra Jóns Pálssonar og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 604. Var áður hluti af stærri bók sem skrifuð var fyrir Þorlák Skúlason biskup.
Árni Magnússon fékk handritið árið 1715 frá Þormóði Torfasyni og var það þá í bandi með annarri Guðmundar sögu (AM 395 4to), Jóns sögu helga (AM 392 4to) og Grænlands annálum Jóns Guðmundssonar lærða (AM 768 4to).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. október 1973.