„Hér hefur Lilju bróður Eysteins“
„Almáttugur Guð allra stétta …“
„… víst ef léki á dominus tecum. Amen“
„Hér hefur Rósu sem Sigurður blindur hefur kveðið “
„Faðir vor Kristur fríður hinn hæsti …“
„… endann fel eg nú guði á hendi. Amen“
Röng yfirskrift.
„Maríu vísur“
„Faðir og son á hæstum hæðum …“
„… enda fel eg svo guði á hendi. Amen“
Óheil, vantar tvö bl. (frá erindi 109, línu 3-133, línu 6).
Síðari tíma fyrirsögn.
„Græðarinn lýðs og landa …“
„… svo endist vísan mín. Amen“
Kvæðið er kallað Píslarkross í Katalog II 1894 og hjá Jóni Þorkelssyni 1888:46
„Allra hlutanna er upphaf …“
„… frá föður himna …“
Vantar aftan af.
„oooins lætur hún allan dofna …“
„… um allan aldur alda. Amen“
Kvæðasafn 1922-27:251-256
Vantar framan af.
„Krossgrátur“
„Faðir vor Kristur í friðinum hæsta …“
„… guði í vald um aldir alda. Amen“
Á efri spássíu með 17. aldar hendi: Píslargrátur bps Jóns
Á eftir kvæðinu hefur texti verið skafinn burtu (neðri hluti bl. 53v).
„Hér hefur upp krossdrápu Halls prests“
„Heyr ilmanda hjartans yndi …“
„… send um alla veröld án enda.“
Heiti kvæðisins kemur fyrir í lokaerindi.
Skrifarinn hefur víða bætt við klausum á latínu sem vísa til innihalds kvæðisins, einkum á neðri spássíu og í lokin.
„Maríu vísur Halls prests“
„Sælust sjóvar stjarna …“
„… eg læt svo fræðið falla.“
Fyrirsögnin er ólæsileg en Árni Magnússon skrifar hana aftur á spássíu.
„Hér hefur Michaelsflokk Halls prests“
„Óðar gef þú upphaf …“
„… blífa nú og að eilífu.“
Kvæðasafn 1922-27:370-85.
„Hér hefur Nikulásdrápu Halls prests“
„Í nafni Guðs vil ég upphaf efna …“
„… svo blífi þær að eilífu. Amen“
„Heyr mildingur allra alda …“
„… enda fel eg svo þér á hendi. Amen“
Heiti kvæðisins kemur fyrir í lokaerindi.
„Vísur af o bone Jesú: hefur Hallur p. Ögmundsson erind[jn ort?]“
„Heyr mig, Jesú, hjálparinn mætur …“
„… göfuglig hjálparbry[nja] …“
Einungis upphaf, endar í 11. erindi, 2. ljóðlínu.
Síðari tíma blaðsíðumerking með bleki, 1-178.
Ellefu kver, auk 6 stakra blaða og tvinns:
Með hendi séra Gísla Jónssonar í Selárdal, síðar Skálholtsbiskups, síðléttiskrift.
Spássíumynd af konu neðst á 49v.
Upphafsstafir kvæða pennaflúraðir, sums staðar með laufskreytingum og skreyttir með rauðu og grænu bleki, skrautlegastir á 1v, 12r, 21r, 29r, 48v, 56v, 66v.
Stórir pennaflúraðir upphafsstafir víða (sums staðar með laufskreytingum, annars staðar fylltir), skrautlegastir á 25v, 26v, 33v, 39r, 45r, 58v, 76v, 77r-v, 78v, 81v.
Fyrirsagnir oft rauðritaðar.
Krossar af ýmsum stærðum og gerðum víða á spássíum, t.d. 1v, 14r-18v, 23r-26r, 33r-37r, 51v, 56v, 57v-58v, 59v-60r, 75r-77v, 83r-86r.
Flúr á neðri spássíu 36v-37r, 59v, 63r, 65r, 69v, 87v.
Bendill á 2v.
Band frá febrúar 1972 (182 mm x 155 mm x 80 mm). Leður á kili og hornum, pappaspjöld klædd fínofnum líndúki. Saumað á móttök. Saurblað í bandi. Handritið liggur í öskju.
Fimmtán fastir seðlar með hendi Árna Magnússonar:
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 20. janúar 1988.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í febrúar 1972. Eldra band fylgdi ekki.