Blöðin hafa öll verið blaðmerkt í einu með blýanti 1-37.
Band frá júlí 1968 (219 mm x 190 mm x 16 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd fínofnum líndúki. Tvö saurblöð úr bandi. Handritið liggur í öskju.
Seðill (101 mm x 84 mm) er staðsettur fyrir aftan fremra saurblað. Árni Magnússon hefur skrifað: „1704 in Junio, feck eg þetta af Gudmundi Jonssyne i Mula i Fliotzhlïd.“ Yngri hönd hefur bætt við efst á blaðið að seðillinn hafi áður verið í miðju af AM 409 a VI 4to: „Indlagt mellem bl. 32-33.“
Á versó-hlið er hluti af heimilisfangi sýnilegt. Bréfið var sent til Árna Magnússonar á meðan hann var í Skálholti.
Ýmsir, t.d. Kålund 1889:xiv, Íslenzar þjóðsögur (I) 1862:614 og Jón Þorkelsson 1956:199-120 hafa talið Jón Guðmundsson lærða höfund þessa rits og AM 409 a I 4to eiginhandarrit hans. Fræðimenn hafa nú dregið þetta hvort tveggja alfarið í efa (Halldór Hermannsson 1924:xviii og Einar G. Pétursson 1998:147-148).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 25. október 1973.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1968.
Aðalmerki: Dárahöfuð með sjö bjöllum á kraga (bl. 1, 4).
Mótmerki: Fangamark, tveir stafir (bl. 2, 3).
Seinni tíma blýantsblaðmerking 2-5 (bl. 1r-4r). Seðill fremst er merktur sem blað 1.
Eitt kver: bl. 1-4 (1+4, 2+3), 2 tvinn.
Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Fyrsta lína texta og fyrsta lína lokaerindi er skrifuð með kansellískrift.
Tveir mismunandi og litlir bókahnútar, bl. 4r.
Skreyting við eða umhverfis griporð.
Síðari tíma hönd hefur bætt við: „Nr. 1“ á spássíu á bl. 1r.
Seðill (205 mm x 162 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar þar sem hann skrifar titil ritsins: „Krucks=Spaa“. Seðillinn var áður tvinn, gert úr bréfi sem sent var til Árna Magnússonar (sjá hinn hlutann við AM 409 a V 4to). Framan við seðilinn er annar seðill sem tilheyrir AM 409 a VI (sjá fyrir ofan).
Skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur allt handritið til 17. aldar. (Katalog (I) 1889:614-615). Jón Þorkelsson tímasetur þennan hluta hins vegar til c1650 (Jón Þorkelsson1899:213).
Árið 1730 voru blöðin hluti af No 409 in 4to (sbr. AM 456 fol., 19r; AM 477 fol., 31r).
Vatnsmerki á seðli, stórir stafir „HHEVSER“ og ártalið „1692“.
Seinni tíma blýantsblaðmerking 7-14 (bl. 1r-8r). Kápublöð eru blaðmerkt sem blöð 6 og 15.
Eitt kver: bl. 1-8 (1+8, 2+7, 3+6, 4+5), 4 tvinn.
Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Bl. 8v: Ígildi bókahnúts.
Skreyting við eða umhverfis griporð.
Aðalmerki: Pro Patria (Maid of Dort) með fangamark „AI“ undir (bl. 2, 3, 6, 7).
Mótmerki: Fangamark "AI" (bl. 1, 4, 5, 8).
Seinni tíma blýantsblaðmerking 16-23 (bl. 1r-8r).
Eitt kver: bl. 1-8 (1+8, 2+7, 3+6, 4+5), 4 tvinn.
Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Fyrirsögn og fyrsta lína texta skrifuð með kansellískrift.
Seinni tíma blýantsblaðmerking 24 (bl. 1r).
Eitt stakt blað.
Ein hönd, óþekktur skrifari, blendingsskrift.
Leifar efst á bl. 1r gefa til kynna að upphafstafir hafi verið dregnir hærri og verið skreyttir.
Ígildi bókarhnúts.
Seinni tíma blýantsblaðmerking 25-26 (bl. 1r-2r). Seðill aftast er merktur sem blað 27.
Tvinn: 1-2 (1+2).
Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Fyrirsögn dreginn stærri og lítilega skreytt.
Ígildi bókahnúts á bl. 2v.
Leifar af rauðu innsigli á blaði aftast.
Aftast er blað sem áður var hluti af tvinn, gert úr bréfi sem sent var til Árna (sjá hinn hlutann við AM 409 a I 4to). Á umslaginu eru leifar af innsigli.
„Þ 7 Heimsins furduverk“
„Babilons murveger upbigder ...“
„... og víser 5 þeim sem á siónuum voru, láti yfer 14. menn “
„Umm þad land Nyremblani ...“
„... og gaf skömakarjnn hlfu mejra fẏr|er þennann, enn hinn.“
„Anno 1449. þann 28. octobr: var Christian greifi ...“
„... 1646. Brann vopnahűs Kaupenhavnar “
Frá stjórnarárum dönsku konunganna Kristjáns I. til Kristjáns IV. (1449-1646).
„CHRONOLOGIA edr Tdar Registur | umm þad sjerlegasta, sem skjed hefur j verỏlldjnne … Sjerdeilis j Dan|mỏrk og krïngliggjandi Lỏndum.“
„Anno mundi 60. sl Cain sinn brődur Abel i hel ...“
„... þ lifdu þeir lærdu menn Beliramus og Joh: Scothus.“
Atburðir úr Gamla testamentinu, en einnig aðrir atburðir fram undir árið 1000.
Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam (bl. 1, 4, 8, 9).
Mótmerki: Fangamark (bl. 2, 3, 5, 6, 7, 10).
Seinni tíma blýantsblaðmerking 28-37 (bl. 1r-10r).
Þrjú kver:
Hugsanlega ein hönd, óþekktur skrifari, mismunandi skriftartegundir.
Fyrirsagnir og millifyrirsagnir dregnar stærri.
Örlítið pennaflúr er víða í stöðu griporðs.
Með síðari tíma hönd hefur verið bætt við: „Nr. 6“ á spássíu á bl. 1r,
Fremst í AM 409 a I-VI 4to er seðill (sjá AM 409 a I 4to) með upplýsingum um feril VI. hluta. Áður lá þessi seðill milli bl. 5 og 6 í AM 409 a VI 4to (32 og 33). Aftan á seðlinum er sennilega brot úr bréfi til Árna Magnússonar.
Árni Magnússon fékk þennan hluta handritsins í júní 1704 frá Guðmundi Jónssyni í Múla í Fljótshlíð (sbr. seðil).