Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 279 a 4to

Þingeyrabók ; Ísland, 1250-1275

Tungumál textans
íslenska (aðal); latína

Innihald

1 (1r-7v)
Grágás
Upphaf

Það er mælt að hver maður á reka …

Niðurlag

… þá á sá allan.

Athugasemd

Hluti af ritinu; Rekaþáttur.

Tungumál textans
íslenska
2 (8r)
Rekaskrá
Upphaf

Þessa reka eiga þeir Brandur Jónsson og Guðmundur …

Niðurlag

… á klaustur og …

Athugasemd

Óheil.

Skrá um réttindi til reka er að hluta hafa tilheyrt Þingeyraklaustri.

Efnisorð
3 (8v)
Kristfé í Hvammi
Upphaf

Kristfé þau sem standa upp …

Niðurlag

… úr þriðjungi

Athugasemd

Þ.e. í Vatnsdal, er Karl hinn auðgi gaf.

4 (9r-v)
Rekar Þingeyraklausturs
Upphaf

Svo eru …

Niðurlag

… sona [..] …

5 (10r)
Virðing jarða Þingeyraklausturs
Upphaf

Virtust svo Þingeyraklaustursjarðir …

Niðurlag

… Hagi xxxc

Skrifaraklausa

Anno d.Mºdº sexto (sbr. blað 10r).

Athugasemd

4 línur. Eldri skrift hefur verið skafin upp.

Skorið hefur verið neðan af blaðinu.p

6 (10v-11v)
Latneskir textar
Tungumál textans
latína
Efnisorð
6.1 (10v)
Helgisaga?
Athugasemd

  • Einungis niðurlagið, 12 línur.

Efnisorð
6.2 (10v-11v)
Historiae ecclesiasticae
Höfundur

Eusebius Pamphili

Athugasemd

Interprete Ruffino er bætt við í AM 477 fol.

Nær til hluta af V, 22, 24-26. Upphafslínurnar á blaði 10v eru fimm, en skorið er neðan af því blaði og þar vantar í texta. Framhald á blöðum 11r-11v, en neðstu línur blaðs 11v eru auðar.

Efnisorð
7 (12r-v)
Skrá um skipti á Spákonuarfi
Upphaf

Svo skal skipta spákonuarfi …

Niðurlag

[…]lög.

Athugasemd

Ein og hálf síða.

Texti er máður, ill- eða ólæsilegur auk þess sem skemmd á miðri síðu skerðir textann.

Tungumál textans
íslenska
Efnisorð
8 (12v-13v)
Skrá um fjárheimtur og leigufé og sauðatolla Þingeyraklausturs
Upphaf

Á Auðunnarstöðum

Athugasemd

Meirihluti blaðs 13r er óskrifaður, en neðst eru fjórar línur um hvalskipti. Á blaði 13v eru aðeins sex línur langsum, afar illlæsilegar.>

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
i + 13 blöð + i (230 mm x 163 mm).
Tölusetning blaða

  • Blaðsíðumerking á annarri hverri síðu 1, 3, 5 o.s.frv. Síðustu tvær síður eru merktar beggja vegna, sbr. 23, 23, 25 og 26.

Kveraskipan

Tvö kver.

  • Kver 1: blöð 1-8, 4 tvinn.
  • Kver 2: blöð 9-13, 2 tvinn og 1 stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur meginhluta handritsins miðað við fullskrifað blað er ca 160-165 null x 120 null.
  • Línufjöldi er ca 29 á fullskrifuðum blöðum í meginhluta handritsins. Á blaði 9r eru 32 línur og á blaði 11r eru línurnar 37.

Ástand

  • Blöðin eru öll meira eða minna sködduð og á flestum eru stór fúagöt; texti er því verulega skertur (sjá t.d. blöð 1r-2v).
  • Skorið hefur verið neðan af blöðum 8 og 10 og eftir stendur aðeins efri hluti þeirra.
  • Á blaði 12 er letur mjög máð.

Skrifarar og skrift

  • Ýmsar hendur: Sama hönd virðist á blöðum 1r-7v; önnur á blaði 8r; sú þriðja á blöðum 8v-9v; enn önnur á 10v-11v. Skriftin er frumgotnesk á meginhluta textans. Textaskrift er á blöðum 10v-11v; sömuleiðis á blöðum 12r-v og á blöðum 8v-9v er með léttiskriftareinkennum.

Skreytingar

  • Rauðir og grænir upphafsstafir á blöðum 1-6.

  • Rauðritaðar fyrirsagnir eru á blöðum 1-6

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Elstu hlutar handritsins eru tímasettir til ca 1250-1275, en í því eru viðbætur með nokkrum yngri höndum, allar götur fram á 16. öld.
  • Spássíuskrif eru á blaði 4r með árfljótaskrift.

Band

Nýlegt band (238 mm x 194 mm x 20 mm). Spjöld eru klædd fínofnum striga. Leður er á hornum og kili. Fest á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og það er tímasett til 13. aldar í  Katalog I , bls. 531. Hlutar handritsins eru tímasettir eins og hér segir í  ONPRegistre , bls. 449:

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 31. janúar 1986.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 18. mars 2009; lagfærði í nóvember 2010,  Haraldur Bernharðsson skráði 25. janúar 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar í 29. mars 1886, Katalog I> bls. 531-32 (nr. 1011).

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið á árunum 1970-1971.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, komu 31. mars 1970.

Notaskrá

Höfundur: Kjeldsen, Alex Speed
Titill: , Filologiske studier i kongesagahåndskriftet Morkinskinna
Umfang: Supplementum 8
Höfundur: Bjarni Einarsson
Titill: Gripla, Um Spákonuarf
Umfang: 4
Höfundur: Seip, Didrik Arup
Titill: Palæografi. B. Norge og Island, Nordisk kultur
Umfang: 28:B
Höfundur: Seip, Didrik Arup
Titill: , Om et norsk skriftlig grunnlag for Edda-diktningen eller deler av den
Umfang: s. 81-207
Höfundur: Blaisdell, Foster W.
Titill: The verb-adverb locution in certain Old Icelandic manuscripts, Scandinavian Studies
Umfang: XXXII
Höfundur: Lindblad, Gustaf
Titill: Studier i Codex Regius av äldre eddan
Höfundur: Hreinn Benediktsson
Titill: Linguistic studies, historical and comparative
Höfundur: Louis-Jensen, Jonna
Titill: , "Syvende og ottende brudstykke". Fragmentet AM 325 IV a 4to
Umfang: s. 31-60
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Höfundur: Kålund, Kristian
Titill: Palæografisk Atlas: Oldnorsk-islandsk Afdeling
Höfundur: Foote, Peter
Titill: Kreddur, Reflections on Landabrigðisþáttr and rekaþáttr in Grágás
Umfang: s. 90-106
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: The localisation and dating of medieval Icelandic manuscripts, Saga book
Umfang: 25
Lýsigögn
×

Lýsigögn