Detaljer om håndskriftet

PDF
PDF

AM 334 fol.

Grágás, Járnsíða, Jónsbók ; Island, 1260-1281

Bemærkning
Staðarhólsbók er annað helsta handrit Grágásar og eina skinnhandrit Járnsíðu frá 1271.

Indhold

1 (1r-1r)
Jónsbók
Incipit

En af því að lögbók vottar svo víða …

Explicit

… en sáluna allra helst …

Bemærkning

Texti lítillega skertur.

Einungis Dómakapítuli, 17. kapítuli Mannhelgibálks Jónsbókar. Síðasta línan illlæsileg.

Blaðið var upprunalega autt.

Tekstklasse
2 (1v-92r)
Grágás
Incipit

Á Dögum feðra vorra voru þau lög sett …

Explicit

… Ef menn flytja hval úr almenningu og skulu þeir honum .vsque. tilförina.

Bemærkning

Texti skertur á fáeinum stöðum.

Tekstklasse
3 (92v-108r)
Járnsíða
Incipit

Í nafni föður og sonar og andans helga …

Explicit

… Því að einn skal eyris synja en tveir tveggja sem fyrr segir.

Bemærkning

Óheil.

Á milli bl. 104 og 105 er eyða sem svarar til tveggja blaða. Neðst á bl. 104v hefur Árni Magnússon skrifað hér vantar.

Bl. 108v upprunalega autt.

Tekstklasse

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale
Skinn.
Antal blade
i + 108 + i (325-330 mm x 230-235 mm). Blað 69v er að mestu leyti autt og neðri helmingur ytri dálks á bl. 70r.
Foliering

  • Handritið var blaðmerkt af Kålund með rauðu bleki, 1-108.
  • Það hefur einnig verið blaðsíðumerkt 1-215 en aðeins á oddasíðum.

Lægfordeling

Fjórtán kver.

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-11, stakt blað og tvinn.
  • Kver III: bl. 12-19, 4 tvinn.
  • Kver IV: bl. 20-27, 4 tvinn.
  • Kver V: bl. 28-35, 4 tvinn.
  • Kver VI: bl. 36-43, 4 tvinn.
  • Kver VII: bl. 44-51, 4 tvinn.
  • Kver VIII: bl. 52-58, 3 tvinn og stakt blað (bl. 55).
  • Kver IX: bl. 59-68, 5 tvinn.
  • Kver X: bl. 69-78, 5 tvinn.
  • Kver XI: bl. 79-84, 3 tvinn.
  • Kver XII: bl. 85-94, 5 tvinn.
  • Kver XIII: bl. 95-100, 2 tvinn og stakt blað.
  • Kver XIV: bl. 101-108, 4 tvinn.

Layout

  • Tvídálka.
  • Leturflötur er 241 +/- 3 mm x 170 +/- 5 mm (ytri dálkur: 241 +/- 3 mm x 80 +/- 2 mm; innri dálkur: 241 +/- 2 mm x 78 +/- 3 mm).
  • Línufjöldi er 37.
  • Gatað fyrir línum og dálkum. Einnig má víða sjá strikað fyrir línum og dálkum, e.t.v. með oddi.
  • Stórir stafir víða dregnir út úr leturfleti, einkum ef þeir lenda í upphafi línu.
  • Víða eyður fyrir kaflafyrirsagnir, sem síðar hafa flestar verið fylltar.

Tilstand

  • Gert hefur verið við göt á bl. 1 og 3 og hefur texti skerst á báðum blöðunum.
  • Handritið er víða blettótt, dökkt og fúablettir (einkum framarlega). Bl. 107 og 108 eru mjög dökk og skítug.
  • Skorið hefur verið ofan af ytri dálki blaðs 108 og er texti skertur vegna þess.

Skrifttype

Þrjár hendur, en tíu hendur aðrar skrifa stutta pósta, þar af átta í þeim hluta sem hönd A skrifar ( Finsen 1879:V-VII ). Ólafur Lárusson telur hins vegar að vera kunni að hönd H og K séu sama höndin ( 1936:12-13 ).

Jónsbók:

I. 1ra-b: Óþekktur skrifari.

Grágás:

II. 1va-69va og 87ra:30-92rb: e.t.v. Þórarinn kaggi Egilsson (hönd A).

III. 70ra-87ra:31 Óþekktur skrifari (hönd B).

IV. 5rb:20-37, 7vb:20-24, 68ra:33-68rb:27, 89rb:18-19, 89vb:1-11, 90va:6-14: Óþekktur skrifari (hönd C).

V. 19ra:15-37, 22vb:1-6: Óþekktur skrifari (hönd D).

VI. 9rb:35-37: Óþekktur skrifari (hönd E).

VII. 10ra:33-37: Óþekktur skrifari (hönd F).

VIII. 21rb:1-37: Óþekktur skrifari (hönd G).

IX. 44ra:20-28: Óþekktur skrifari (hönd H).

X. 63va:1-37: Óþekktur skrifari (hönd I).

XI. 91ra:2-10: Óþekktur skrifari (hönd K).

Járnsíða:

XII. 92va-108rb: Óþekktur skrifari.

XIII. 98rb:18-37: Óþekktur skrifari.

Udsmykning

Við upphaf þátta í Grágásarhlutanum eru stórir upphafsstafir (8-15 inndregnar línur) með laufteinungsvafningum í rómönskum stíl:

  • Bl. 1v: A (13 línur) í upphafi Kristinna laga þáttar.
  • Bl. 12r: S (12 línur) í upphafi Erfðaþáttar.
  • Bl. 19r: S (15 línur) í upphafi Ómagabálks.
  • Bl. 27v: S (14 línur) í upphafi Festaþáttar.
  • Bl. 37r: M (9 línur) í upphafi þáttarins um fjárleigur.
  • Bl. 51r: F (8 línur) í upphafi Vígslóða.
  • Bl. 70v: E (9 línur) í upphafi Landabrigðisþáttar.

Í upphafi kafla eru minni upphafstafir (2-3 línur) í ýmsum litum (rauðum, grænum, bláum og gulum), flestir með pennaflúri í öðrum lit. Stærri upphafsstafir af þessari gerð eru á nokkrum stöðum.

Í Grágás:

  • Bl. 9r: Þ (4 línur) í upphafi 36. kafla Kristinna laga þáttar.
  • Bl. 40r: Þ (3 línur) í upphafi 11. kafla þáttarins um fjárleigur.
  • Bl. 43v: Þ (3 línur) í upphafi 38. kafla þáttarins um fjárleigur.
  • Bl. 45v: Þ (3 línur) í upphafi 49. kafla þáttarins um fjárleigur.
  • Bl. 46r: F (4 línur) í upphafi 52. kafla þáttarins um fjárleigur.
  • Bl. 47v: M (5 línur) í upphafi 62. kafla þáttarins um fjárleigur.
  • Bl. 68v: A (3 línur) í upphafi 114. kafla Vígslóða.
  • Bl. 87r: U (4 línur) í upphafi 48. kafla Landabrigðisþáttar.
  • Bl. 87v: H (4 línur) í upphafi rekaþáttar í Landabrigðisþætti.

Í Járnsíðu:

  • Bl. 92v: I (meðfram leturfleti) í upphafi Þingfararbálks.
  • Bl. 93v: Þ (5 línur) í upphafi Kristindómsbálks.
  • Bl. 95v: S (7 línur) í upphafi 11. kafla Mannhelgi.
  • Bl. 100r: S (7 línur) í upphafi Erfðatals.

Í efnisyfirlitum á bl. 27r-v, 36v-37r, 50v-51r og 70r er fremsti stafur í hverri línu dreginn með lit og fyllt upp í línur með litdregnum mynstrum.

Rauðritaðar fyrirsagnir eru í upphafi þátta og kafla.

Síðari tíma teikningar og flúr er á nokkrum stöðum á spássíum og í upphafsstöfum, t.d. á bl. 49r (andlit á spássíu) og 51v (andlit í upphafsstöfum).

Tilføjelser

  • Kaflanúmer í Grágásarhlutanum eru síðari tíma viðbót.
  • Leiðréttingar við efnisyfirlit á 27r-v, 51r og 71r.

Spássíugreinar frá ýmsum tímum er að finna í handritinu og hafa sumar skaddast er skorið var utan af blöðunum, en einnig hafa ýmsar þeirra að mestu verið máðar út. Víða eru athugasemdir við textann og tilvísanir í rit, sumar samtíma (t.d. um nýmæli), aðrar gerðar af lögfróðum manni á 17. öld. Á a.m.k. einum stað er leiðrétting við textann (31r). Hér má og finna pennakrot af ýmsu tagi, t.d. greinaskilamerki, áherslumerki (t.d. bendlar), pennaprufur og guðlegar upphrópanir.

  • Bl. 1r: Dæmi um styttingar og bönd í handritum.
  • Bl. 11va:8-13: Skrá um eignir nokkurra einstaklinga, tímasett til c1330-1340 ( Jón Þorkelsson 1899-1902:1 ). Staðanöfn benda til þess að þetta fólk hafi búið í Húnavatnssýslu. Þar á meðal er Ragnhildur nokkur, sem kann að vera eigandi handritsins (sjá einnig Ólafur Lárusson 1936:7 ).
  • Bl. 23r (efri spássía): Lausavísa (Ef þú hæðir hryggvan mann).
  • Bl. 69v: Athugasemd um handaskipti.
  • Bl. 108r: Upplýsingar um feril og síðari eigendur handritsins.
  • Bl. 108r: Upplýsingar um ástand handritsins, gerðar með 17. aldar hendi, e.t.v. þeirri sömu og gerir sumar athugasemdirnar við textann.

Indbinding

Tréspjöld klædd skinni, blindþrykktu, með spennum. Kjölur og jaðrar klæddir skinni, kjölur upphleyptur.

Historie og herkomst

Herkomst

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1260-1281. Kålund tímasetur þó Jónsbókarkaflann (1ra-1rb) til c1300 ( Katalog (I) 1889:275 ). Ólafur Lárusson ( 1936:10 ) og Stefán Karlsson ( 1977:20 ) tímasetja Grágásarhlutann (1va-92rb) til c1260-1270, en Gunnar Karlsson til 1271-1272 ( 1992:40-42 og Grágás 1992:xvi ). Stefán Karlsson segir Grágás skrifaða með sömu hendi og Konungsbók Grágásar (GKS 1157 fol.) og Kringlublaðið (Lbs. fragm. 82) (sjá einnig Finnur Jónsson 1895:iv ). Hann telur og hugsanlegt að Þórarinn kaggi Egilsson prestur á Völlum sé annar af meginskrifurum Grágásarhlutans ( 1977:20-24 ). Járnsíðuhlutinn (92va-108rb) hefur verið tímasettur til c1271-1281 ( Jansson 1908:208 og Jón Helgason 1962:ix ). Sigurður Líndal telur að Grágás sé skrifuð um líkt leyti, þ.e. eftir 1271 ( 1998 ).

Proveniens

Lítið er vitað um Staðarhólsbók fram til 1540 að Hólmfríður Erlendsdóttir ánafnaði hana Filippusi Runólfssyni, en Hólmfríður dó 1543 (108r). Filippus gaf Páli Vigfússyni lögmanni handritið (108r) og eftir það fennir aftur í spor þess, til þess það kemst í eigu Bjarna Péturssonar, sýslumanns í Dalasýslu. Sonur hans, Pétur Bjarnason, gaf það séra Páli Ketilssyni frá Hvammi, og hann gaf Árna Magnússyni ( Árni Magnússon 1909:57 ).

Erhvervelse

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. mars 1987.

Yderligere information

Katalogisering og registrering

  • ÞS jók við 6.-7. janúar 2009 og síðar.
  • DKÞ og GI skráðu 13. oktober 2003. Einkum var stuðst við  Ólaf Lárusson 1936 , Stefán Karlsson 1977 og Grágás 1992 .
  • HB grunnskráði 26. januar 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar í januar 1886 (sjá  Katalog I 1888:275-276 (nr. 492) ).

Bevaringshistorie

Yfirfarið í Kaupmannahöfn í janúar 1986.

Viðgert af Birgitte Dall í nóvember 1978.

Billeder

  • Ljósprent í  Jus eccelesiasticum 1776:xxiv .
  • Ljósprent í  Grágás (I) 1829:508 .
  • Ljósprent í  Járnsíða 1847:192 .
  • Ljósprent í  Grágás (III) 1883, nr. 2 .
  • Ljósprent í  Palæografisk Atlas 1905, nr. 6 .
  • Ljósprent í  Icelandic Illuminated Manuscripts 1935, nr. 7b og 48a-d .
  • Ljósprent í  Corpus Codicum Islandicorum Medii Ævi (IX) 1936 .
  • Ljósprent í  Jón Helgason 1958:20 .
  • Svart-hvítar myndir af 87r og 98r í  Early Icelandic Script 1965:xxxii (nr. 49-50) .
  • Ljósprent í  Jónas Kristjánsson 1970:23 .
  • Ljósprent í  Saga Íslands (III) 1978:42 .

Bibliografi

Forfatter: Kjeldsen, Alex Speed
Titel: Opuscula XIII, Bemærkninger til pronomenet sjá og dets middelalderlige historie
Omfang: s. 243-287
Forfatter: Jacobsen, Bent Chr.
Titel: , Om lovbøgernes kristendomsbalk og indledningskapitlerne i de yngre kristenretter
Omfang: s. 77-88
Forfatter: Louis-Jensen, Jonna
Titel: Kongesagastudier: Kompilationen Hulda-Hrokkinskinna,
Omfang: XXXII
Forfatter: Jørgensen, Jon Gunnar
Titel: The lost vellum Kringla,
Omfang: XLV
Forfatter: Magerøy, Ellen Marie
Titel: Islandsk hornskurd. Drikkehorn fra før "brennevinstiden",
Omfang: Supplementum 7
Forfatter: Kjeldsen, Alex Speed
Titel: Filologiske studier i kongesagahåndskriftet Morkinskinna,
Omfang: Supplementum 8
Forfatter: Seip, Didrik Arup
Titel: Nordisk kultur, Palæografi. B. Norge og Island
Omfang: 28:B
Forfatter: Guðrún Ása Grímsdóttir
Titel: Sturlustefna, Um sárafar í Íslendinga sögu Sturlu Þórðarsonar,
Omfang: 32
Forfatter: Lindblad, Gustaf
Titel: Studier i Codex Regius av äldre eddan
Forfatter: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titel: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Forfatter: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titel: Sýnisbók íslenskrar skriftar
Forfatter: Guðbjörg Kristjánsdóttir
Titel: Kirkja og kirkjuskrúð, Lýsingar í íslenskum handritum
Omfang: s. 93-98
Forfatter: Guðrún Þórhallsdóttir
Titel: Að kaupa til karnaðar sér ambátt, Orð og tunga
Omfang: 13
Forfatter: Halldór Hermannsson
Titel: Icelandic illuminated manuscripts of the middle ages,
Omfang: 7
Forfatter: Halldór Hermannsson
Titel: Illuminated manuscripts of the Jónsbók, Islandica
Omfang: 28
Forfatter: Haraldur Bernharðsson
Titel: Gripla, Þykkja og þykja. Hljóðbeygingarvíxl einfölduð
Omfang: 15
Forfatter: Fett, Harry
Titel: Miniatures from Icelandic manuscripts, Saga book
Omfang: 7
Forfatter: Hreinn Benediktsson
Titel: Linguistic studies, historical and comparative
Forfatter: Byock, Jesse L.
Titel: Dispute resolution in the Sagas, Gripla
Omfang: 6
Forfatter: Jón Helgason
Titel: , Sevels islandske håndskrifter
Omfang: s. 108-119
Titel: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Redaktør: Kålund, Kristian
Forfatter: Chesnutt, Michael
Titel: On the structure, format, and preservation of Möðruvallabók, Gripla
Omfang: 21
Forfatter: Már Jónsson
Titel: Árni Magnússon : ævisaga
Titel: Færeyinga saga,
Redaktør: Ólafur Halldórsson
Omfang: 30
Forfatter: Widding, Ole
Titel: Håndskriftanalyser. Én eller flere skrivere,
Omfang: s. 81-93
Forfatter: Widding, Ole
Titel: , Håndskriftanalyser
Omfang: s. 65-75
Forfatter: Bekker-Nielsen, Hans, Widding, Ole
Titel: , Fra ordbogens værksted
Omfang: s. 341-349
Forfatter: Sigurgeir Steingrímsson
Titel: Gripla, Stefán Karlsson dr. phil h.c. 2.12.1928-2.5.2006
Omfang: 17
Forfatter: Stefán Karlsson
Titel: Introduction, Sagas of Icelandic bishops. Fragments of eight manuscripts
Omfang: s. 9-61
Forfatter: Stefán Karlsson
Titel: Kringum Kringlu, Nýr flokkur, Árbók 1976 (Landsbókasafn Íslands)
Omfang: 2
[Metadata]
×
  • Land
  • Island
  • Sted
  • Reykjavík
  • Institution
  • Árni Magnússon-instituttet for islandske studier
  • Opbevaringssted
  • Handritasvið
  • Håndskriftsamling
  • Safn Árna Magnússonar
  • Katalognummer
  • AM 334 fol.
  • Nøgleord
  • Love
  • XML
  • Vis som XML  
  • PDF alt i ét
  • InformationInformation
  • Bemærkninger
  • Send feedback om håndskriftet  

[Metadata]