Manuscript Detail

PDF
PDF

AM 138 fol.

Vatnsdæla saga ; Iceland, 1640-1643

Contents

(1r-40r)
Vatnsdæla saga
Rubric

Þessi saga kallast Vatnsdæla.

Incipit

Maður er nefndur Ketill …

Explicit

… hann var rétttrúaður maður og elskaði Guð.

Final Rubric

Og endum vér þar Vatnsdæla sögu.

Note

Niðurlag Eyrbyggju, sbr. Katalog I (ógreinilegt), er í 11 efstu línunum á blaði 1r, yfirstrikað.

Language of Text
Icelandic

Physical Description

Support

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Aðalmerki: lítið skjaldarmerki í skreyttum hringlaga ramma. Fyrir innan er tré með þremur akörnum, fangamark PK og kóróna efst (IS5000-02-0138_1v), bl. 14-58-1117-1923-2428-3032-35. Stærð: 80 x 58 mm,

    Ekkert mótmerki.

    Notað frá 1623 til 1643.

No. of leaves
ii + 40 blöð (287 mm x 190 mm); blað 40v er autt.
Foliation

  • Eldri blaðsíðumerking 1-79; síðari tíma blaðmerking.

Collation

7 kver:

  • I: spjaldblað - viðbót 2 (eitt tvinn + 3 blöð)
  • II: bl. 1-7 (3 tvinn + eitt blað: 1+6, 2+5, 3+4, 7)
  • III: bl. 8-15 (4 tvinn: 8+15, 9+14, 10+13, 11+12)
  • IV: bl. 16-23 (4 tvinn: 16+23, 17+22, 18+21, 19+20)
  • V: bl. 24-31 (4 tvinn: 24+31, 25+30, 26+29, 27+28)
  • VI: bl. 32-40 (4 tvinn + eitt blað: 32+39, 33+38, 34+37, 35+36, 40)
  • VII: spjaldblað (eitt blað)

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 240 mm x 145 mm.

  • Línufjöldi er ca 38-40.

  • Eyða fyrir fyrsta upphafsstaf (sjá blað 1r).

Condition

  • Ellefu efstu línurnar á blaði 1r eru yfirstrikaðar; þar um ræðir niðurlag annarrar sögu (Eyrbyggju, sbr. Katalog I ; mjög ógreinilegt).

  • Blekblettir eru víða.

Script

  • Með hendi Jóns Gissurarsonar (léttiskrift) að undanskildu niðurlagi sögunnar á blaði 40r. Skrifari þess er óþekktur; léttiskrift.

Musical Notation

  • Nótur á bókfelli í gömlu bandi.

Additions

  • Neðri helmingur blaðs 40r er skrifaður seinna á vegum Árna Magnússonar.
  • Athugasemdir og lesbrigði á spássíum og á milli lína.
  • Sums staðar er texti undirstrikaður, sbr. t.d. á blöðum 11r og 13r.

Binding

  • Band (290 mm x 190 mm x 10 mm) frá 1911-1913. Bókfell á kili, pappírsklæðning.

  • Band er frá 1700-1730. Spjöld og kjölur eru klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótum (nú í Acc 7).

Accompanying Material

  • Á saurblaði 1v er seðill merktur„Fra Universitetsbiblioteket Kristiania 22.2.1922.“ Hann er undirritaður af Wilhelm Mèunthe „Til Universitetsbiblioteket i Kjöbenhavn.“ Neðarlega á seðli er athugsemd Finns Jónssonar.
  • Á saurblaði 2r eru tveir seðlar með hendi Árna Magnússonar.

    1) (97 mm x 149 mm): Vatnsdæla saga með hendi Jóns Gissurssonar. Úr bók í folio (eldri en 1643) er ég fékk af Sveini Torfasyni 1704. Er (sem mér virðist) skrifuð eftir einni bók in folio með hendi séra Jóns í Villingaholti sem nú er eign Jóns Hákonarsonar á Vatnshorni.

    2) (228 mm x 166 mm): [Efst á seðlinum] Vatnsdæla sögu þessa bið ég að samanlesist við bók monsieur Jóns Hákonarsonar svo að hún verði orðrétt samhljóða. Um bókstöfunina hirði ég eigi mjög því hún er ómerkileg í hvorri tveggja bókanna. Það sem eigi stendur í bók monsieur Jóns Hákonar bið ég allt útdragist en þó svo að lesið verði. [Neðst á seðlinum] Þessi Vatnsdæla saga er nú samanlesin við áðurnefnda bók monsieur J.H.S. svo hún er orðrétt við hina samhljóða en það sem eigi er að finna í bók monsieur Jóns er allt undirdregið í þessari. Við Bókstöfuninni hrærði ég ekkert. Kom frá Íslandi frá Magnúsi Einarssyni 1727.

History

Origin

Handritið er skrifað á Íslandi. Jón Gissurarson skrifaði það fyrir 1643 (sbr. seðil) og er það tímasett til um 1640 í Katalog I , bls. 99.

Það var upprunalega hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 126 fol., AM 136 fol., AM 165 f fol. og hluta AM 165 m fol.

Árni taldi handritið skrifað eftir bók Jóns Hákonarsonar á Vatnshorni í fol. í uppskrift Jóns Erlendssonar í Villingaholti. Hann fékk svar þar að lútandi frá Magnúsi Einarssyni en hann virðist hafa borið handritin saman að tilmælum Árna (sbr. seðil).

Á saurblaði 1v er seðill með athugasemdum Wilhelms Mèunthe við þessa tilgátu Árna.

Provenance

Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon frá Sveini Torfasyni árið 1704 (sbr. seðil).

Acquisition

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. maí 1974.

Additional

Record History

Kålund gekk frá handritinu til skráningar í November 25, 1885 Katalog I; bls. 99-100 (nr. 167), DKÞ skráði September 13, 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 21. og 24. nóvember 2008; lagfærði í November 2010 ÞÓS skráði June 18, 2020. EM uppfærði vatnsmerkin og skráði kveraskipan June 14, 2023.

Custodial History

Bundið af Otto Ehlert 1911-1913.

Bundið í Kaupmannahöfn 1700-1730. Það band er nú í Acc 7.

Surrogates

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Bibliography

Author: Eggen, Erik
Title: , The Sequences of the Archbishopric of Nidarós I: Text
Scope: XXI
Author: Slay, Desmond
Title: , The manuscripts of Hrólfs saga kraka
Scope: XXIV
Title: , Vatsdæla saga
Editor: Finnur Jónsson
Scope: 58
Author: Loth, Agnete
Title: Sønderdelte arnamagnæanske papirhåndskrifter,
Scope: p. 113-142
Metadata
×
  • Country
  • Iceland
  • Place
  • Reykjavík
  • Institution
  • The Árni Magnússon Institute for Icelandic Studies
  • Repository
  • Handritasvið
  • Collection
  • Safn Árna Magnússonar
  • Shelfmark
  • AM 138 fol.
  • Keywords
  • Sagas of Icelanders
  • Additional pictures
  • CCPCCP
  • XML
  • View as XML  
  • PDF all-in-one
  • InformationInformation
  • Notes
  • Send Feedback on Manuscript  

Metadata