„Þessi saga kallast Vatnsdæla.“
„Maður er nefndur Ketill …“
„… hann var rétttrúaður maður og elskaði Guð.“
Og endum vér þar Vatnsdæla sögu.
7 kver:
1) (97 mm x 149 mm): „Vatnsdæla saga með hendi Jóns Gissurssonar. Úr bók í folio (eldri en 1643) er ég fékk af Sveini Torfasyni 1704. Er (sem mér virðist) skrifuð eftir einni bók in folio með hendi séra Jóns í Villingaholti sem nú er eign Jóns Hákonarsonar á Vatnshorni.“
2) (228 mm x 166 mm): „[Efst á seðlinum] Vatnsdæla sögu þessa bið ég að samanlesist við bók monsieur Jóns Hákonarsonar svo að hún verði orðrétt samhljóða. Um bókstöfunina hirði ég eigi mjög því hún er ómerkileg í hvorri tveggja bókanna. Það sem eigi stendur í bók monsieur Jóns Hákonar bið ég allt útdragist en þó svo að lesið verði. [Neðst á seðlinum] Þessi Vatnsdæla saga er nú samanlesin við áðurnefnda bók monsieur J.H.S. svo hún er orðrétt við hina samhljóða en það sem eigi er að finna í bók monsieur Jóns er allt undirdregið í þessari. Við Bókstöfuninni hrærði ég ekkert. Kom frá Íslandi frá Magnúsi Einarssyni 1727.“
Handritið er skrifað á Íslandi. Jón Gissurarson skrifaði það fyrir 1643 (sbr. seðil) og er það tímasett til um 1640 í Katalog I , bls. 99.
Það var upprunalega hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 126 fol., AM 136 fol., AM 165 f fol. og hluta AM 165 m fol.
Árni taldi handritið skrifað eftir bók Jóns Hákonarsonar á Vatnshorni í fol. í uppskrift Jóns Erlendssonar í Villingaholti. Hann fékk svar þar að lútandi frá Magnúsi Einarssyni en hann virðist hafa borið handritin saman að tilmælum Árna (sbr. seðil).
Á saurblaði 1v er seðill með athugasemdum Wilhelms Mèunthe við þessa tilgátu Árna.
Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon frá Sveini Torfasyni árið 1704 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. maí 1974.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar í 25. nóvember 1885 Katalog I; bls. 99-100 (nr. 167), DKÞ skráði 13. september 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 21. og 24. nóvember 2008; lagfærði í nóvember 2010 ÞÓS skráði 18. júní 2020. EM uppfærði vatnsmerkin og skráði kveraskipan 14. júní 2023.
Bundið af Otto Ehlert 1911-1913.
Bundið í Kaupmannahöfn 1700-1730. Það band er nú í Acc 7.