Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 148 fol.

Gísla saga Súrssonar ; Ísland, 1651

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-40r)
Gísla saga Súrssonar
Titill í handriti

Saga af Gísla Súrssyni.

Upphaf

[Þ]að er upphaf á sögu þessari að Hákon konungur Aðalsteinsfóstri réð fyrir Noregi …

Niðurlag

… Víða hefir hann búið á Mýrum og eru menn komnir frá honum.

Skrifaraklausa

Þessi saga er skrifuð eftir sögubók Þorleifs Magnússonar á Hlíðarenda, anno 17. mars 1651 í Villingaholti .

Baktitill

Lúku vér hér Gísla sögu Súrssonar. Guð gefi alla góða daga utan enda. Amen.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Blaðfjöldi
iii + 40 blöð + iii blöð (287 mm x 185 mm); bl. 40v er autt.
Tölusetning blaða

  • Seinni tíma tölusetning blaða. Bl. 1, 5, 10 o.s.frv. eru tölusett með svörtu bleki; önnur blöð eru tölusett með rauðum lit.

Kveraskipan

6 kver:

  • I: spjaldblað og fremri saurblöð (eitt tvinn + tvö blöð)
  • II: bl. 1-10 (5 tvinn: 1+10, 2+9, 3+8, 4+7, 5+6)
  • III: bl. 11-20 (5 tvinn: 11+20, 12+19, 13+18, 14+17, 15+16)
  • IV: bl. 21-30 (5 tvinn: 21+30, 22+29, 23+28, 24+27, 25+26)
  • V: bl. 31-40 (5 tvinn: 31+40, 32+39, 33+38, 34+37, 35+36)
  • VI: aftari saurblöð og spjaldblað (tvö blöð + eitt tvinn)

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 235 mm x 132 mm.
  • Línufjöldi er ca 23-24.
  • Eyður fyrir upphafsstafi; á stöku stað er þó skreyttur upphafsstafur, s.s. á blöðum 4, 9v og 34v.

Ástand

  • Víða eru blettir á spássíum og leturfleti (sjá blað 35, 27, 28).
  • Texti sést almennt í gegn; mismikið en víðast allnokkuð (sjá blað 17, 33 og víðar).

Skrifarar og skrift

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Vísur eru tölusettar á spássíum (síðari tíma gjörningur sjá t.d. blöð 22r, 23v, 24v og víðar).

Band

Band (292 null x 190 null x 13 null): Spjöld og kjölur eru klædd bókfelli. Blár safnmarksmiði á kili.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi nánar tiltekið í Villingaholti árið 1651 (sbr. bl. 40r).

Þetta er uppskrift eftir skinnbókinni AM 556 a 4to (sbr. saurblað 2v).

Handritið var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig blöð sem nú eru í Í þeirri bók voru einnig blöð sem nú eru í AM 13 fol., AM 34 II fol., AM 49 fol., AM 113 b fol., AM 155 fol. og AM 185 fol. (Agnete Loth 1960, lxii og Jón Helgason 1970, 354-355). AM 113 c fol. var sett í bókina í stað b (sbr. seðil í AM 113 c fol. og Jón Jóhannesson 1956, xvii).

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var í eigu Þorbjargar Vigfúsdóttur en Árni Magnússon fékk hana frá Þórði Jónssyni(sbr. Jón Jóhannesson 1956, xvii).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. mars 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar í 27. nóvember 1885 Katalog I; bls. 103-104 (nr. 177), VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 24. nóvember 2008, yfirfór í september 2009; lagfærði í nóvember 2010 ÞÓS skráði 19. júní 2020. BS lagfærði blaðatalið 12. september 2022. EM uppfærði vatnsmerkin og skráði kveraskipan 29. maí 2023. BS bætti við upplýsingar varðandi uppruna 30. apríl 2024

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Negatíf örfilma gerð 1995 á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi (askja 421).

Notaskrá

Titill: Membrana Regia Deperdita,
Ritstjóri / Útgefandi: Loth, Agnete
Umfang: 5
Höfundur: Ari þorgilsson
Titill: , Íslendingabók Ara fróða AM. 113a and 113b, fol.
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Jóhannesson
Umfang: 1
Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Höfundur: Jón Helgason
Titill: Småstykker 1-5,
Umfang: s. 350-363
Höfundur: Jón Helgason
Titill: Sylloge sagarum. Resenii bibliotheca. Vatnshyrna,
Umfang: s. 9-53
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn