„Sagan af Hörði og Hólmverjum.“
„Á dögum Haralds hins hárfagra …“
„… að eftir engan einn mann á Íslandi hafa jafnmargir menn verið í hefnd drepnir og urðu þeir allir ógildir.“
Nú lúkum vér hér Hólmverja sögu.
Fjögur kver:
Með hendi Ásgeirs Jónssonar; kansellískrift.
Pappaband (320 null x 207 null x 10 null) er frá 1772-1780. Blár safnmarksmiði á kili.
Innanverð spjaldblöð eru klædd blöðum úr prentaðri bók.
Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ). Það er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 110, en virkt skriftartímabil skrifara var ca 1686-1707.
Uppskrift eftir handriti með hendi Árna Hákonarsonar (sbr. AM 435 b 4to, blað 7r).
Var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 149 fol., AM 157 a fol., AM 154 fol., AM 157 c fol., AM 140 fol., AM 157 e fol., AM 164 k fol., AM 150 fol., AM 770 a 4to og AM 157 d fol. (sbr. AM 435 b 4to, blöð 6v-7r).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XIV fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. AM 435 b 4to, blöð 6v-7r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. apríl 1974.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 3. desember 1885 í Katalog I; bls. 110 (nr. 192), DKÞ grunnskráði 1. október 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 3. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.