Fyrir árin 1540-1547. Afrit. Strikað yfir bl. 7 sem er innskotsblað með afritum og útdráttum úr skrifum frá sama tíma áhrærandi biskupinn. Bl. 63v og 85 auð.
Fyrir árin 1548-1554. Afrit. Bl. 95 autt.
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Kanna með einu handfangi og fangamarki PC // Ekkert mótmerki ( 2 , 4 , 6 , 9 , 10-12 , 22-25 , 30-34 , 36 , 38 , 40? , 43-44 , 46 , 49-50 , 52-53 , 56 , 60 , 62-63 , 66-67 , 70-73 , 75 , 77 , 80-81 , 83 , 90 , 92-95 ).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Kanna með tveimur handföngum 1, vínber og bókstafir PDM fyrir neðan // Ekkert mótmerki ( 98-99 , 102-103 , 108-109 , 115 , 122 ).
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Kanna með tveimur handföngum 2, vínber og bókstafir BDM // Ekkert mótmerki ( 104-105 , 113 , 117 , 119 , 124 , 126-132 ).
Band frá 1968.
Tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 240. Bl. 96r-135r skrifuð af sr. Halldóri Jónssyni í Reykholti, er hann var prestur í Skálholti (sbr. seðil).
Jón Torfason hefur átt bókina 1699 (sbr. bl. 1r), en áður hefur hún verið í fórum Brynjólfs Sveinssonar biskups (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. desember 1974.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1968. Eldra band fylgir með í öskju.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.