Meðal efnis: Gamli sáttmáli, Skipan Kristjáns konungs III. frá 1551 um börn presta sem fæðast skilgetin..
Gömul blaðmerking 1-157, en óvart hlaupið yfir 90-99 (sem skýrir hvers vegna hún nær upp í 157).
Pappírinn stökkur og einkum slitinn á jöðrunum.
Spássíugreinar hér og þar.
Fremst í handritinu eru leifar af gömlu saurblaði, en á því stendur: Biørn Gudmundz | son | anno M.DC.XLIII og þar á eftir er tilvitnun í biblíuna.
Einn seðill (120 mm x 97 mm) með hendi Árna Magnússonar: „ Var fyrrum Þormóðar Torfasonar.“
Skrifað af Birni Guðmundssyni í Kirkjuvogi í Höfnum á árunum 1643-1644 (sbr. bl. 1r, 124v og leifar af gömlu saurblaði fremst í hdr.).
Talið er að skrifarinn, Björn Guðmundsson, hafi fyrstur átt handritið. Síðar komst það í eigu Þormóðs Torfasonar (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. júlí 1973.