„Hier Byriar EyrByggiu | Edur Þorsnesinga | Saugu“
Titill á bl. 1r. Bl. 22 er autt vegna eyðu í forriti.
Ein hönd.
Nótur á bókfelli í bandi.
Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótum.
Fastur seðill (184 mm x 140 mm) fremst með hendi skrifara Árna Magnússonar: „Eyrbyggja saga. Úttekin úr bók er verið hafði eign herra Þorláks Skúlasonar 1621. Síðan hafði Guðbrandur Þorláksson gefið Jóni nokkrum Jónssyni bókina. Jón Jónsson fékk síra Þorsteini Jónssyni (á Eiðum) hana 1662 en síra þorsteinn Jónsson gaf hana Kristrúnu dóttur sinni 1687, á Eiðum. Denne Eyrbyggja er conf: med 448 in 4to.“
Með hendi séra Jóns Pálssonar og tímasett til c1600-1640, en til fyrri hluta 17. aldar í Katalog I , bls. 642. Var áður hluti af stærri bók sem í voru einnig AM 380 4to, AM 404 4to og AM 458 4to.
Árni Magnússon segir handritið úr bók sem hann fékk hjá Jóni Einarssyni á Hólum og verið hafði eign Þorláks Skúlasonar biskups 1641. Guðbrandur Þorláksson gaf síðan Jóni Jónssyni bókina en hann fékk hana séra Þorsteini Jónssyni á Eiðum 1662. Þorsteinn gaf hana Kristrúnu dóttur sinni 1678 (sbr. seðil).
Afhendingu frestað 18. apríl 1997 vegna rannsókna í Kaupmannahöfn; kom 5. desember 2006.
Í láni á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn frá 18. apríl 1997 til 5. desember 2006.