„Hér byrjar Búa sögu til gamans og fróðleiks.“
„Helgi bjóla son Ketils flatnefs nam Kjalarnes …“
„… Og er mikil ætt frá honum komin.“
Og endar þar með Kjalarnesinga sögu.
„Nú eftirfylgir sagan af Jökli syni Búa Andríðarsonar.“
„Jökli þótti nú svo illt verk sitt að hann reið þegar í burtu …“
„… Og kunnum vér ekki lengra frá Jökli að segja.“
Og er hér endir hans sögu.
„Sagan af Slysa-Hróa“
„Þann tíma er Sveinn kóngur …“
„… Beiddist Hrói …“
Brot. Einungis upphaf.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar 1-34.
Með hendi Jóns Erlendssonar, fljótaskrift.
Fyrirsögn með stærra letri á bl. 1r.
Spássíugrein á bl. 21r.
Band frá 1772-1780 (201 mm x 156 mm x 10 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Spjaldblöð eru úr prentaðri bók. Blár safnmarksmiði á kili.
Saurblað tilheyrir bandi.
Seðill (94 mm x 100 mm) með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um uppruna og feril á rektóhlið, festur við blað 14r.
Árni Magnússon fékk frá Sigurði Magnússyni á Ferju (Sandhólaferju) (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. október 1975.
Birgitte Dall gerði við í júlí 1961.