„COMPUTUS MENS|ium et Dierum Anni Solaris | Solar ärſins Manada og | Daga Reikningur | Med Leidriettu Tungltale, Og | nockumm Nyumm Tunglztals Reglum | Og Rymtals Toblum, Med Einfỏlldum | hætte, Samantekinn og Skrifadur Af | G.B.S.P.“
Rímtal samið á íslensku með tilheyrandi útskýringum og viðbótum um stjörnumerkin, merkisdaga og veðurmerki. Bl. 34r og 92v auð.
Ein hönd.
Nótnaskrift á bókfelli í bandi.
Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótnaskrift.
Fastur seðill (191 mm x 95 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Þetta rímkver hefur átt síra Torfi Jónsson í Bæ. Mun vera úr fórum magister Brynjólfs. Ég fékk það (minnir mig) hjá Þuríði Sæmundsdóttur.“
Með hendi sr. Jóns Erlendssonar í Villingaholti og tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 154, en samkvæmt bl. 36r var rímtalið samið árið 1655 og virku skriftartímabili sr. Jóns lauk 1672.
Árni Magnússon fékk frá Þuríði Sæmundsdóttur (að hann minnir) en fyrri eigendur hafa verið sr. Torfi Jónsson í Bæ og Brynjólfur Sveinsson biskup (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. janúar 1979.
Tekið eftir Katalog II , bls. 153-154 (nr. 1822). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 3. október 2001.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.