Skráningarfærsla handrits

Lbs 2460 4to

Samtíningur ; Ísland, 1800

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1
Tyrkjarán á Austfjörðum
Titill í handriti

Ein historia eður frásögn um þau stórkostlegu og eimdarfullu tíðindi á Íslandi er engin höfðu þesskyns þvílík skeð síðan fyrst þetta land byggðist af Norðmönnum, að ræningjar og óþjóðalýður kom hingað úr suðurálfu heimsins, rændu héðan fólki og fé, með óheyrilegum athöfnum, um burtflutning þeirra herteknu manna og þrældómsok, og svo um afturkomu þeirra hingað til Íslands er það auðnaðist í eitt samanskrifað, eftir frásögnum þeirra síra Ólafs Egilssonar, Einars Loftssonar, Halldórs Jónssonar hertekna, Kláusar Eyjólfssonar skólameistara í Skálholti að austan, einninn sendibréf Jóns Jónssonar Guðlaugssonar af Birni Jónssyni anno 1643

Athugasemd

Framan við er formáli með yfirskriftina; Nokkur orð fyrir framan tyrkjans sögu.

Efnisorð
2
Spánverjavígin 1615
Titill í handriti

Sönn frásaga af Spanskra manna skipbrotum og slagi Anno 1615

Efnisorð
3
Þórisdalur
Titill í handriti

Frásaga síra Björns Stefánssonar á Snæfuglsstöðum um uppleitan Þórisdals sem nú kallar Aradalur

Titill í handriti

Samanskrif biskupsins herra Odds Einarssonar eftir framburði Þormóðs Ásmundssonar í Bræðratungu hvör til Odds kom seytján vetra það sama ár sem hann drukknaði og svo hljóðar

Athugasemd
5
Hvalur í Hvalavatni
Titill í handriti

Um Hval í Hvalavatni

Efnisorð
6
Prestur á Möðrudal á Fjalli
Titill í handriti

Um prest á Möðrudal á Fjalli

Efnisorð
7
Ljúflingskona á Hóli á fjalli
Titill í handriti

Um Ljúflings konu á Hóli á Fjalli

Efnisorð
8
Hræðileg historia
Titill í handriti

Ein hræðileg historía hvörja sá loflegi biskup herra Oddur Einarsson hefur látið uppskrifa forðum úr bréfi sýslumannsins Jóns Magnússonar á Haga á Barðaströnd honum tilskrifuðu anno 1606, 25. aprilis og fundist hefur í annálum af honum með hans eigin hendi skrifuðum, hvar af Oddur Eireksson sonarson hans segist hafa fengið nokkur blöð frá anno 1604 til annum 1610

Athugasemd
9
Heklugos 1597
Titill í handriti

Um eldsuppkomuna í Heklu anno 1597 Dag 3ja Janúari eftir bréfi herra Odds Einarssonar til síra Böðvars Jónssonar

Efnisorð
10
Starkaður gamli
Titill í handriti

Um Starkað hinn gamla

11
Ólafur Ingjaldsson
Titill í handriti

Um Ólaf Ingjaldsson

12
Ólafur kóngur frækni
Titill í handriti

Um Ólaf kóng frækna og aðra konga

Efnisorð
13
Langlífir menn
Titill í handriti

Nokkur eftir dæmi um langlífi manna

14
Útlendar fréttir
Titill í handriti

Um stórkostleg sjóarflóð, stormahríðir, eldskaða, drepsótt og óvenjulegt eitt og annað

Athugasemd

Árin 1721-23.

15
Sjaldséðar skepnur
Titill í handriti

Um skjalldseinar skepnur fátt eitt

Efnisorð
16
Malta
Titill í handriti

Um Malta

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Blaðfjöldi
70 blöð (198 mm x 158 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd, svipuð hendi Gísla Konráðssonar á ungum aldri.

Band

Skinnband.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, um 1800.
Ferill

Handritið var í eign [Egils Gottskálkssonar], föður Jónasar Egilssonar

Aðföng

Jónas Egilsson, Völlum, seldi, 1934

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 17. apríl 2024 ;

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi , bls. 321.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III

Lýsigögn