Detaljer om håndskriftet

PDF
PDF

AM 113 b fol.

Íslendingabók ; Island, 1625-1672

Indhold

(1r-10v)
Íslendingabók
Rubrik

Schedæ Ara prests fróða

Afstamning og indbyrdes slægtskab

Árni Magnússon nefndi þetta eintak A og áleit það bestu fáanlega uppskrift. Hann taldi Jón Erlendsson hafa skrifað það fyrir Brynjólf Sveinsson biskup eftir glötuðu skinnhandriti, eins og AM 113 a fol. sem hann nefndi B (sbr. seðil 2).

Incipit

Íslendingabók gjörða ég fyrst biskupum vorum …

Explicit

… en ég heiti Ari.

Tekstens sprog
islandsk
Tekstklasse

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Mótmerki 1: Fangamerki HP (IS5000-02-0113b_4, sjá líka IS5000-02-0113b_5), bl. 1-5 (fangamerkin á blöðum 4-5 eru ekki eins skýr og hin). Stærð: 17-18 x 12 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 30-31 mm.

    Aðalmerki 1: Tveir turnar með tveimur gluggum (IS5000-02-0113b_6), bl. 6, 10. Stærð: 59 x 47 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 56 mm.

    Aðalmerki 1 (par) (IS5000-02-0113b_7), bl. 7, 8, 9. Stærð: 58 x 44 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 57 mm.

    Notað frá 1625 til 1672 .

Antal blade
i + 10 + i blað (290 mm x 190 mm). Neðri hluti blaðs 10v er auður.
Foliering

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar, 1-10.

Lægfordeling

4 kver:

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 235-240 mm x 125-130 mm.
  • Línufjöldi er 25.
  • Eyður fyrir upphafsstafi kafla.
  • Leiðbeiningarstafur á bl. 1r og 10r.

Tilstand

  • Blöð eru dökk og blettótt, en skerðir ekki texta.
  • Blöðin eru trosnuð, einkum á innri spássíu, og hefur verið gert við þau með því að líma blaðrenning langsum. Texti hefur þó ekki skerst.
  • Blað 1r er skemmt efst í hægra horni.
  • Bleksmitun víða.

Skrifttype

Skrifað af Jóni Erlendssyni, kansellíbrotaskrift.

Udsmykning

Eyður fyrir stóra upphafsstafi (2 línur). Minni upphafstafir eru smá skreyttir.

Fyrirsagnir og fyrsta lína oft skrifaðar í stærri kansellíbrotaskrift.

Jaðar er sums staðar litaður rauður.

Tilføjelser

Spássíugreinar og lesbrigði úr AM 113 a fol. með hendi Árna Magnússonar frá um 1690 (Már Jónsson 1998). Skrift Árna er á viðgerðum við innri spássíu, og því má ætla að viðgerðir hafi verið gerðar á hans tíma.

Kaflanúmer eru ytri spássíu.

Indbinding

Band frá nóvember 1971 (298 mm x 212 mm x 14 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.

Vedlagt materiale

Fjórir fastir seðlar fremst með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um uppruna, feril o.fl.

  • Seðill 1 (merktur a, 232 null x 163 null): Það sem ég hér úr Codice B. svo superstitiose nóterað hefi um aisteins, Raikiarvik. airi. grai eða önnur þvílík orð, ætla ég ei sé að miklu gagni, því það er ei annað en combinatio apicum inter ducendum literas og finnast allvíða í þessu exemplari alíka durctus annars staðar, svo sem gi id est gi fere semper; gr id est gr; ga id est ga; gu id est gu; gs id est gs; li id est li; ns id est ns; un id est un; an id est an sæpins; am id est am sæpins; nu id est nu; ra id est ra; og id est og; si id est si; havi id est havi. Í Codice B. er ordinaire s, þar sem hér er s præcipue in fine, sæpe etiam in principio et medio. Ísland ibi sæpus ubi hic Ísland. Ego aliqvedo ista corrigere negte xi. u. pro v. et viceversa kann og vera að þar oftar finnist er hér korrigerað er. Svo eru og þar stundum tvö strik (") upp yfir vocalibus, sem ég eigi um hirði að nótera. Á versósíðu seðilsins hefur verið krotað yfir texta.
  • Seðill 2 (merktur b, 206 mm x 162 mm): Þetta exemplar hefi ég til eignar fengið af Þórði Jónssyni, en hann skar það út framan úr bók Þorbjargar Vigfúsdóttur, föðursystur sinnar. Það er accuratissum allra þeirra exemplarium, sem ég séð hefi, og ekkert hygg ég betra til vera eftir það Codex pergamenus er undir lok liðinn. Ég kalla það hjá mér Codicem A. qvasi accuratissimum vel primarium. Variæ lectiones, sem hér alls staðar nóteraðar eru með minni hendi, eru teknar úr exemplare öðru (113 a folio) með hendi séra Jóns Erlendssonar rituðu 1651. Það hefur fyrrum átt Torfi Jónsson í Bæ, og erft það eftir sálugan magister Brynjólf Sveinsson. En ég fékk það frá Þorláki Þórðarsyni biskupi og var þá fyrst framan í stórri bók, sem ég tók í sundur, og separeraði tractatus. Þetta exemplar kalla ég hjá mér Codicem B. potest esse Baiensem eða og secundum, ex ordine liberarum primarum alphabeti.
  • Seðill 3 (merktur c, 206 mm x 162 mm): Um Codicem B. er mín gáta að séra Jón muni hana ex membrana fyrst uppskrifað hafa. Sú skrift muni eigi magister Brynjólfi líkað hafa (því þessi Codex er og lengri en Codex A. sem af collatione er ad sjá). Muni svo séra Jón (α) á ný Codicem membraneum uppskrifað (β) hafa og lagt sig eftir að fylgja betur literaturæ Codicis membranei, hvar um honum þó eigi sýnt var. Og sé svo sú síðari betri Copia þessa Codex A. Sé þetta nú villt gáta, þá er það víst að hvorugt þessara exemplarium (A. eða B.) er skrifað eftir öðru því í báðum þeim finnast einstöku orð sem í hinu útilátin eru. Vide Collationem. α) álíka og sagnir eru að til sé gengið um Sæmundareddu sem magister Brynjólfur skal hafa látið tvisvar skrifa áður en honum líkaði skriftin. β) Endilega kynni og vera að Codex A. væri fyrst skrifaður og hefði biskup hann annað hvort burtléð, burtgefið eða í annan máta eitt exemplar en nú hafa viljað, og þar fyrir séra Jóni bókfellið að nýju afhent til nýrrar útskriftar. Hann svo Codicem B. eftir bókfellinu skrifað en flýtt sér, eftir vanda, og verið svo mínus accuratus.
  • Seðill 4 (merktur d, 206 mm x 162 mm): Í báðum þessum Codicibus A. og B. er auður pappír aftan við, hvar af auðráðið er að bókfellið hefur eigi meira innihaldið er hér er vitað.

Historie og herkomst

Herkomst

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til um 1650 í Katalog I , bls. 74, en virkt skriftartímabil skrifara var ca 1625-1672.

Handritið var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig blöð sem nú eru í AM 13 fol., AM 34 II fol., AM 49 fol., AM 148 fol., AM 155 fol. og AM 185 fol. (Agnete Loth 1960, lxii og Jón Helgason 1970, 354-355). AM 113 c fol. var sett í bókina í stað b (sbr. seðil í AM 113 c fol. og Jón Jóhannesson 1956, xvii).

Proveniens

Árni Magnússon fékk handritið að gjöf frá Þórði Jónssyni, sem skar það framan úr bók Þorbjargar Vigfúsdóttur, föðursystur sinnar (sbr. seðil 2r).

Árið 1730 var handritið hluti af No. 113 in fol. (sbr. AM 456 fol., 3v og AM 477 fol., 5v).

Erhvervelse

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. apríl 1974.

Yderligere information

Katalogisering og registrering
  • MJG uppfærði skráningu með gögnum frá BS, 6. februar 2024.
  • EM uppfærði vatnsmerki 26. maj 2023 og kveraskipan 5. juni 2023.
  • ÞÓS skráði 8. juni 2020.
  • ÞS endurskráði samkvæmt reglum TEIP5 8. október 2009.
  • DKÞ skráði 20. november 2001.
  • GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 29. maj 1886 (sjá Katalog I 1889:74-75 (nr. 133).
Bevaringshistorie

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1971.

Bundið af Otto Ehlert á árunum 1880-1920? Það band fylgir ekki.

Gömul viðgerð á bl. 1.

Billeder

Bibliografi

Titel: , Membrana Regia Deperdita
Redaktør: Loth, Agnete
Omfang: 5
Forfatter: Ari þorgilsson
Titel: Íslendingabók Ara fróða AM. 113a and 113b, fol.,
Redaktør: Jón Jóhannesson
Omfang: 1
Forfatter: Jørgensen, Jon Gunnar
Titel: The lost vellum Kringla,
Omfang: XLV
Forfatter: Lindblad, Gustaf
Titel: Studier i Codex Regius av äldre eddan
Forfatter: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titel: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Forfatter: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titel: Sýnisbók íslenskrar skriftar
Forfatter: Haukur Þorgeirsson, Teresa Dröfn Njarðvík
Titel: The Last Eddas on vellum, Scripta Islandica
Omfang: 68
Forfatter: Jón Helgason
Titel: , Småstykker 1-5
Omfang: s. 350-363
Titel: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Redaktør: Kålund, Kristian
Forfatter: Bek-Pedersen, Karen
Titel: Gripla, St Michael and the sons of Síðu-Hallur
Omfang: 23
Forfatter: Már Jónsson
Titel: Árni Magnússon : ævisaga
Forfatter: Seip, Didrik Arup
Titel: Palæografi, B: Norge og Island, Nordisk Kultur
Omfang: XXVIII:B
Forfatter: Ólafur Halldórsson
Titel: Grænland í miðaldaritum
[Metadata]
×
  • Land
  • Island
  • Sted
  • Reykjavík
  • Institution
  • Árni Magnússon-instituttet for islandske studier
  • Opbevaringssted
  • Handritasvið
  • Håndskriftsamling
  • Safn Árna Magnússonar
  • Katalognummer
  • AM 113 b fol.
  • Nøgleord
  • Oldtidstekster
  • Yderligere billeder
  • Farvek.Farvek.
  • XML
  • Vis som XML  
  • PDF alt i ét
  • InformationInformation
  • Bemærkninger
  • Send feedback om håndskriftet  

[Metadata]