„Saga af Sigurde Þǫ̉gla“
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Dárahöfuð 1 // Mótmerki: Flagg ICO ( 1-2 , 8 , 48 ).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Dárahöfuð 1, með 4 meðalstórum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir // Ekkert mótmerki ( 3 , 4-5? , 9-10 , 41 , 43 , 46-47? , 51-52 , 53-55 ).
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Skjaldarmerki með sverðlilju? // Ekkert mótmerki ( 11-14? , 16? , 21-22 , 24? , 26? , 28? , 32? , 35? , 37? , 40? , 42? ).
Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Dárahöfuð 2 // Mótmerki: Fangamark, D eða G? ( 56-58 , 61 ).
Vatnsmerki 5. Aðalmerki: Dárahöfuð 2, með 5 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir // Ekkert mótmerki ( 62? ).
Vatnsmerki 6. Aðalmerki: Dárahöfuð 3, með 7 meðalstórum bjöllum á kraga og 3 stórir hringir // Ekkert mótmerki (fastur seðill aftast í handriti).
Blaðsíðumerking að hluta til með hendi Árna Magnússonar en að mestu leyti eldri.
Eyður fyrir upphafsstafi.
Ein hönd, brotaskrift.
Spássíugrein á bl. 18r með hendi Árna Magnússonar.
Band frá 1976.
Fastur seðill (156 mm x 113 mm) með hendi skrifara Árna Magnússonar: „Frá sál. Assessor Thormod Toruesens enke 1720.“
Skrifað af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 156, en virkt skriftartímabil Jóns var c1625-1672. Var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 187 fol., Eddukvæði og rit og ritgerðir Jóns lærða og Björns á Skarðsá (sbr. AM 435 b 4to, bl. 9v?).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XVII í safni Þormóðar Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðar árið 1720 og tók í sundur (sbr. seðil og AM 435 b 4to, bl. 9v?).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. apríl 1987.
Viðgert og bundið í mars 1976. Eldra band fylgir ekki.