„Hér byrjast sagan af Eigli Skallagrímssyni. Kap. 1.“
„Maður er nefndur Úlfur …“
„… og settist í bú að Borg og bjó þar til elli og kom margt manna frá honum og lýkur svo þessari sögu.“
„Enduð þann 2. maí anno 1780.“
„Drápa Egils Skallagrímssonar ort og flutt í Jórvík á Norðimbralandi, anno Christi 934“
„Hér skulu sýnast lofvísur Egils Skallagrímssonar …“
„… það vill sér til setja.“
„Vestur komum ver …“
„… eða vili tára.“
„Skrifað á Skarðsá í Skagafirð, i xiii Martii 1634, Björn Jónsson manu Exscriptoris“
Skýringar Björns Jónssonar á Skarðsá við Höfuðlausn fylgja kvæðinu.
„Vili Tára sive …“
„… ex voto succedant“
Skýringar Ole Worm á orðunum vilji tára í Höfuðlausn.
„Sonatorrek Egils Skalla-Grímssonar“
„Mjög erum tregt tungu að hræra …“
„… og óhryggur heljar bíða.“
„Endir.“
Blað 135 er autt.
„Edda Snorra Sturlusonar“
„Almáttigur Guð, skapaði himin og jörð …“
„… fyrir utan höllina. Eftir þessari sögu hefur ort Eylífur Goðrúnarson, Þórsdrápu.“
Óheil. Nær að Þórsdrápu.
Kvæðið er með skýringum Jóns Guðmundssonar lærða, Samantektir um skilning á Eddu. Sumstaðar eru skemmdir inn við mitt tvinn og skerða þær á stöku stað texta lítillega (sbr. t.d. á blöðum 172 og 174v-178v). Efni er kaflaskipt og merktir eru kaflar i-xxvii; frásagnir þar á eftir eru auðkenndar með fyrirsögnum og/eða ónúmeruðum kaflamerkjum.
„Hér hefur þátt Styrbjarnar Svíakappa“
„Frá því er að segja að Ólafur og Eyrekur kóngur réðu Svíaveldi …“
„… Og er hér nú ei meira af þessum þætti uppskrifað.“
„Völvuspá“
„Hljóðs bið ég allar helgar kindur …“
„… ársköp setur þau er vara skulu.“
59 erindi. Skýringar Björns Jónssonar á Skarðsá eru við fyrstu 19 vísurnar.
„Hér hefst saga af Eiríki rauða. Kap. 1“
„Óleifur hét konungur er kallaður var Óleifur hvíti …“
„… Og endar hér svo söguna af Eiríki hinum rauða.“
Kaflaskipting: i-ix.
„Hér hefur sögu Bjarnar Hítdælakappa“
„Á dögum Eiríks kóngs blóðaxar …“
„… að Hítarnesi á Íslandi er hét …“
Einungis upphaf sögunnar.
Tuttugu og sjö kver.
Sumstaðar eru skemmdir á blöðum:
Skrifari I:
Skrifari II:
Band (199 null x 185 null x 50 null) er frá 1983.
Spjöld eru klædd fínofnun striga. Grófari strigi er á kili og hornum.
Kver eru saumuð á móttök og saurblöð tilheyra þessu bandi.
Eldra band, tréspjöld klædd bókfelli; leifar af bréfum og bréfsneplum úr bandi, fylgja í sérstakri möppu. Einnig ljósmyndir af bandi.
Handritið er skrifað á Íslandi 1780 (sjá ártal á blaði 120v) og er tímasett þannig í Katalog II, bls. 266.
Það kom í Árnasafn frá Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab 1883. Það hefur e.t.v. verið í eigu Björns Arnfinnssonar á Kletti í Gufudalssveit, eða a.m.k. við norðanverðan Breiðafjörð, á fyrri hluta 19. aldar. (Einar G. Pétursson 1998).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. maí 1987.
VH skráði handritið 8. juni 2009; lagfærði í januar 2011. ÞS skráði 26. november 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 25. august 1909. Katalog II , bls. 266-267 (nr. 2061).
Lagfært og bundið af Birgitte Dall í október 1983.