Detaljer om håndskriftet

AM 409 a I-VI 4to

Krukkspá og annálar ; Ísland, 1600-1700

Bemærkning
Samsett úr sex handritum.

Indhold

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale
Pappír með vatnsmerkjum.
Antal blade
i + 33 + i blað.
Foliering

Handritin hafa öll verið blaðmerkt í einu með blýanti 1-37.

Indbinding

Band frá júlí 1968 (219 mm x 190 mm x 16 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd fínofnum líndúki. Tvö saurblöð úr bandi. Handritið liggur í öskju.

Vedlagt materiale

Seðill (101 mm x 84 mm) er staðsettur fyrir aftan fremra saurblað. Árni Magnússon hefur skrifað: 1704 in Junio, feck eg þetta af Gudmundi Jonssyne i Mula i Fliotzhlïd. Yngri hönd hefur bætt við efst á blaðið að seðillinn hafi áður verið í miðju af AM 409 a VI 4to: Indlagt mellem bl. 32-33. Á versó-hlið er hluti af heimilisfangi sýnilegt, (umslag), sent til Árna Magnússonar á meðan hann var í Skálholti.

Historie og herkomst

Herkomst

Ýmsir, t.d. Kålund 1889:xiv, Íslenzar þjóðsögur (I) 1862:614 og Jón Þorkelsson 1956:199-120 hafa talið Jón Guðmundsson lærða höfund þessa rits og AM 409 a I 4to eiginhandarrit hans. Fræðimenn hafa nú dregið þetta hvort tveggja alfarið í efa ( Halldór Hermannsson 1924:xviii og Einar G. Pétursson 1998:147-148 ).

Erhvervelse

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 25. október 1973.

Yderligere information

Katalogisering og registrering

  • MJG uppfærði með gögnum frá BS, 19. februar 2024.
  • GI tölvuskráði 2. december 2002.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 22. april 1887 (Katalog (I) 1889:614-615 (nr. 1173)).

Bevaringshistorie

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1968. Eldra band fylgdi ekki með.

Billeder

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen 7. juli 1972.

Del I ~ AM 409 a I 4to

Tekstens sprog
islandsk
1 (1r-4r)
Krukkspá
Incipit

Anno 1514 sper Jőn kruckur ...

Explicit

... Þetta til gamanz Giǫ̉rt | F I N I S

Bemærkning

Ýmsir hafa talið Jón Guðmundsson lærða höfund þessa rits og AM 409 a I 4to eiginhandarrit hans. Fræðimenn hafa nú dregið þetta hvort tveggja alfarið í efa ( Halldór Hermannsson 1924:xviii og Einar G. Pétursson 1998:147-148 ).

Tekstklasse

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale
Pappír með vatnsmerkjum.
  • Aðalmerki: Dárahöfuð með sjö bjöllum á kraga (bl. 1, 4 ).

    Mótmerki: Fangamark, tveir stafir (bl. 2, 3 ).

Vatnsmerki á seðli er stórt standandi ljón með kórónu, heldur á exi með bognu skafti.

Antal blade
4 blöð (207-210 mm x 162 mm). Blað 4v er autt.
Foliering

Seinni tíma blýantsblaðmerking 2-5 (1r-4r). Seðill fremst er merktur sem blað 1.

Lægfordeling

Eitt kver: bl. 1-4 (1+4, 2+3), 2 tvinn.

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er c181 mm x 134 mm.
  • Línufjöldi er 33-35.
  • Eftirmáli ritsins endar í totu.
  • Griporð, pennaflúruð.

Tilstand
  • Blöð eru dökk og óhrein, sérstaklega bl. 4v.
  • Jaðar er óskorinn.
  • Viðgerðir með japönskum pappír á neðri hluta sumra blaða.
  • Öll blöð eru með lóðrétt brott í miðju. Bl. 4v eru tvö önnur lóðrétt brot sem gefa til kynna að blöðin hafi verið brotin tvisvar.
Skrifttype

Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Udsmykning

Fyrsta lína texta og fyrsta lína lokaerindi er skrifuð með kansellískrift.

Tveir mismunandi og litlir bókahnútar, bl. 4r.

Skreyting við eða umhverfis griporð.

Tilføjelser

Síðari tíma hönd hefur bætt við: Nr. 1 á spássíu á 1r.

Vedlagt materiale

Fastur seðill (205 mm x 162 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar þar sem hann skrifar titil ritsins: Krucks=Spaa. Seðillinn er í reynd hluti af umslagi til Árna Magnússonar (sjá hinn hlutann við AM 409 a V 4to). Framan við seðilinn er annar seðill sem tilheyrir AM 409 a VI (sjá þar).

Historie og herkomst

Herkomst

Skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur handritið til 17. aldar. ( Katalog (I) 1889:614-615). ( Jón Þorkelsson tímasetur það hins vegar til c1650 1899:213 ).

Proveniens

Það er ekki vitað hvernig handritið kom til Árna Magnússonar.

Del II ~ AM 409 a II 4to

Tekstens sprog
islandsk
1 (1r-8v)
Krukkspá
Incipit

Anno 1514 spaer Ion krukkur ...

Explicit

... Sæll er Jon þä [i þann] tÿma

Bemærkning

Ýmsir hafa talið Jón Guðmundsson lærða höfund þessa rits og AM 409 a I 4to eiginhandarrit hans. Fræðimenn hafa nú dregið þetta hvort tveggja alfarið í efa ( Halldór Hermannsson 1924:xviii og Einar G. Pétursson 1998:147-148 ).

Tekstklasse

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale
Pappír með vatnsmerkjum.
  • Aðalmerki: Einhvers konar skjaldarmerki (bl. 2, 5, 8 ).

Vatnsmerki á seðli, stórir stafir HHEVSER og ártalið 1692.

Antal blade
8 blöð í oktavó (147-150 mm x 98 mm).
Foliering

Seinni tíma blýantsblaðmerking 7-14 (1r-8r). Kápublöð eru blaðmerkt sem blöð 6 og 15.

Lægfordeling

Eitt kver: bl. 1-8 (1+8, 2+7, 3+6, 4+5), 4 tvinn.

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 128-135 mm x 84-86 mm.
  • Línufjöldi er 21-25.
  • Síðustu orð á síðu hanga undir leturfleti á 2r.
  • Griporð á 1r, pennaflúruð.

Tilstand

  • Bl. 8v örlítið máð.
  • Á öllum blöðunum eru göt eftir saumþráð upp við kjöl.

Skrifttype

Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Udsmykning

Bl. 8v: Ígildi bókahnúts.

Skreyting við eða umhverfis griporð.

Tilføjelser
  • Á 3r-v, 4r og 6r eru e.t.v. nokkurs konar áherslumerki á spássíum.
  • Síðari tíma hönd hefur bætt við Nr.2. með blýanti fremst á seðil.
Indbinding

Eldra band (169 mm x 106 mm) frá 1700-1728. Pappírskápu hefur verið slegið um handritið. Árni Magnússon skrifar titil ritsins framan á kápuna. Kápublöðin eru blaðmerkt sem blöð 6 og 15, en einnig hefur einhver (e.t.v. sá sami og blaðmerkti) skrifað: Nr. 2 á fremra kápublaðið. Um núverandi band, sjá inngangsfærslu.

Vedlagt materiale
  • Tvinn (168 mm x 105 mm) er utan um handritið. Árni Magnússon hefur skrifað á rektósíðu þess Krucks-Spá. með brúnu bleki.

Historie og herkomst

Herkomst

Skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur til 17. aldar ( Katalog (I) 1889:614-615).

Del III ~ AM 409 a III

Tekstens sprog
islandsk
3 (1r-8v)
Krukkspá
Rubrik

(Nockud ur Krucks Spä.)

Incipit

Anno 1514. Späer Jön kruckur ...

Explicit

... Hier endast þad, sem eg sied hefe skrifad | af þessari spä, halldid til goda. Vale

Bemærkning

Hluti af ritinu.

Ýmsir hafa talið Jón Guðmundsson lærða höfund þessa rits og AM 409 a I 4to eiginhandarrit hans. Fræðimenn hafa nú dregið þetta hvort tveggja alfarið í efa ( Halldór Hermannsson 1924:xviii og Einar G. Pétursson 1998:147-148 ).

Tekstklasse

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale
Pappír með vatnsmerkjum.
  • Aðalmerki: Pro Patria (Maid of Dort) með fangamark AI undir (bl. 2, 3, 6, 7 ).

    Mótmerki: Fangamark "AI" (bl. 1, 4, 5, 8 ).

Antal blade
8 blöð (202 mm x 165 mm.).
Foliering

Seinni tíma blýantsblaðmerking 16-23 (1r-8r).

Lægfordeling

Eitt kver: bl. 1-8 (1+8, 2+7, 3+6, 4+5), 4 tvinn.

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 155-158 mm x 126 mm.
  • Línufjöldi er 23-28.
  • Leturflötur afmarkaður með þurroddi (ytri spássía).
  • Griporð á 1v, 4v, 7r og 7v.

Tilstand
  • Blöð eru óskorin og jaðar snjáður.
  • Gert hefur verið við bl. 1+8 (tvinn) með japönskum pappír, við kjöl.
Skrifttype

Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Udsmykning

Fyrirsögn og fyrsta lína texta skrifuð með kansellískrift.

Tilføjelser
  • Á spássíu á 1r stendur með hendi Árna Magnússonar: Ex charta Gud|mundi Thorlevii.
  • Síðari tíma hönd hefur bætt við Nr.3. á efri spássíu á bl. 1r.

Historie og herkomst

Herkomst

Skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur handritið til 17. aldar ( Katalog (I) 1889:614-615).

Del IV ~ AM 409 a IV

Tekstens sprog
islandsk
4 (1r-1v)
Krukkspá
Incipit

Krugs kuer spaaDomär 1501 ...

Explicit

... ma ec hafa nÿa sko a fotum og vel vtbwen til ferda

Bemærkning

Hluti af ritinu, en einnig er texti ögn skertur.

Brot.

Ýmsir hafa talið Jón Guðmundsson lærða höfund þessa rits og AM 409 a I 4to eiginhandarrit hans. Fræðimenn hafa nú dregið þetta hvort tveggja alfarið í efa ( Halldór Hermannsson 1924:xviii og Einar G. Pétursson 1998:147-148 ).

Tekstklasse

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale
Pappír. Ekkert vatnsmerki sýnilegt, en hægt að greina keðjur.
Antal blade
1 blað (200 mm x 164 mm).
Foliering

Seinni tíma blýantsblaðmerking 24 (1r).

Lægfordeling

Eitt stakt blað.

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 195 mm x 155 mm
  • Línufjöldi er 27-28.

Tilstand

  • Texti er ögn skertur vegna skemmda á blaði.
  • Strikað er yfir texta á 1v.
  • Gert hefur verið við blaðið með japönskum pappír.

Skrifttype

Ein hönd, óþekktur skrifari, blendingsskrift.

Udsmykning

Leifar efst á bl. 1r gefa til kynna að upphafstafir hafi verið dregnir hærri og verið skreyttir.

Ígildi bókarhnúts.

Tilføjelser
  • Leiðrétting með hendi skrifara á 1v.
  • Síðari tíma hönd hefur bætt við: Nr. 4 inn í leturflöt efst á 1r.

Historie og herkomst

Herkomst

Skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur handritið til 17. aldar ( Katalog (I) 1889:614-615).

Del V ~ AM 409 a V

Tekstens sprog
islandsk
5 (1r-2v)
Krukkspá
Rubrik

Kruks Sp.

Incipit

Er skjede og frammfor ä eirnne Jölanött ...

Explicit

... mä | Jeg hafa n y a skä (!) ä fötum og fliötur til | ferda.

Bemærkning

Hluti af ritinu, sennilega afrit af AM 409 a IV 4to.

Ýmsir hafa talið Jón Guðmundsson lærða höfund þessa rits og AM 409 a I 4to eiginhandarrit hans. Fræðimenn hafa nú dregið þetta hvort tveggja alfarið í efa ( Halldór Hermannsson 1924:xviii og Einar G. Pétursson 1998:147-148 ).

Tekstklasse

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale
Pappír með vatnsmerkjum.
  • Aðalmerki: Texti: GOTT BEWAHR KÖNICH og stórri kórónu á bl. 2, og efri hluti stafanna HHEVSER 1692 á bl. 1. Neðri hluti stafanna má finna í AM 409 a II 4to.
  • Vatnsmerki á seðli, stórt standandi ljón með kórónu, heldur á exi með bognu skafti.
Antal blade
2 blöð (210 mm x 165 mm).
Foliering

Seinni tíma blýantsblaðmerking 25-26 (1r-2r). Seðill aftast er merktur sem blað 27.

Lægfordeling

Tvinn: 1-2 (1+2).

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 150 mm x 110 mm
  • Línufjöldi er 20.

Tilstand
  • Blöð eru óskorin.
  • Blöð eru mislit.
  • Gert hefur verið við jaðar með japönskum pappír og tvö stök blöð hafa verið fest saman (tvinn).
  • Blettir á bl. 1r.
  • Lóðrétt brot á báðum blöðum gefa til kynna að þau hafi verið brotin saman, bl. 1 yst.
Skrifttype

Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Udsmykning

Fyrirsögn dreginn stærri og lítilega skreytt.

Ígildi bókahnúts á 2v.

Tilføjelser
  • Lesbrigði og leiðréttingar á spássíum og inni í texta með hendi Árna Magnússonar. Á spássíu á 1r tilgreinir Árni hvaðan lesbrigði eru tekin, þ.e. úr handriti með hendi Jóns Erlendssonar í Villingaholti og öðru sem verið hafði í eigu Þormóðs Torfasonar.
  • Síðari tíma hönd hefur bætt við: Nr. 5 á spássíu á 1r.
Segl

Leifar af rauðu innsigli á umslagi sem hefur verið notið sem seðill.

Vedlagt materiale

Fastur seðill aftast með hendi Árna Magnússonar. Seðillinn er í reynd hluti af umslagi til Árna (sjá hinn hlutann við AM 409 a I 4to). Á umslaginu eru leifar af innsigli.

Historie og herkomst

Herkomst

Skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur handritið til 17. aldar ( Katalog (I) 1889:614-615).

Del VI ~ AM 409 a VI

Tekstens sprog
islandsk
1 (1r-1r)
Þau 7 heimsins furðuverk
Rubrik

Þ 7 Heimsins furduverk

Incipit

Babilons murveger upbigder ...

Explicit

... og víser 5 þeim sem á siónuum voru, láti yfer 14. menn

Tekstklasse
2 (1r-4v)
Þættir úr sögu Grikkja og Rómverja
Incipit

Umm þad land Nyremblani ...

Explicit

... og gaf skömakarjnn hlfu mejra fẏr|er þennann, enn hinn.

Tekstklasse
3 (4v-7r)
Annáll
Incipit

Anno 1449. þann 28. octobr: var Christian greifi ...

Explicit

... 1646. Brann vopnahűs Kaupenhavnar

Bemærkning

Frá stjórnarárum dönsku konunganna Kristjáns I. til Kristjáns IV. (1449-1646).

Tekstklasse
4 (7r-10v)
Annáll
Rubrik

CHRONOLOGIA edr Tdar Registur | umm þad sjerlegasta, sem skjed hefur j verỏlldjnne … Sjerdeilis j Dan|mỏrk og krïngliggjandi Lỏndum.

Incipit

Anno mundi 60. sl Cain sinn brődur Abel i hel ...

Explicit

... þ lifdu þeir lærdu menn Beliramus og Joh: Scothus.

Bemærkning

Atburðir úr Gamla testamentinu, en einnig aðrir atburðir fram undir árið 1000.

Tekstklasse
5 (10v-10v)
Krukkspá
Rubrik

Fragment űr Krucks Spä

Incipit

Anno 1514. sper Jőn kruckur ...

Explicit

... verra er þ, enn dur, þvj einginn

Bemærkning

Vantar aftan af.

Ýmsir hafa talið Jón Guðmundsson lærða höfund þessa rits og AM 409 a I 4to eiginhandarrit hans. Fræðimenn hafa nú dregið þetta hvort tveggja alfarið í efa ( Halldór Hermannsson 1924:xviii og Einar G. Pétursson 1998:147-148 ).

Tekstklasse

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale
Pappír með vatnsmerkjum.
  • Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam með stöfum undir (bl. 1, 4, 8, 9 ).

    Mótmerki: Fangamark FCC(?) (bl. 2, 3, 5, 6, 7, 10 ).

Antal blade
10 blöð (199-212 mm x 162-170 mm).
Foliering

Seinni tíma blýantsblaðmerking 28-37 (1r-10r).

Lægfordeling

Þrjú kver:

  • Kver I: bl. 1-4 (1+4, 2+3), 2 tvinn.
  • Kver II: bl. 5-6 (5+6), 1 tvinn.
  • Kver III: bl. 7-10 (7+10, 8+9), 2 tvinn.

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 169-192 mm x 152-153 mm.
  • Línufjöldi er 27-36.
  • Síðasta orða á síðu hangir undir leturfleti á 5r og 10r.

Tilstand
  • Vantar aftan af handriti.
  • Blöð blettótt og óhrein.
  • Blöð eru óskorin.
  • Eldri viðgerð með japönskum pappír.
Skrifttype

Ein hönd, óþekktur skrifari, mismunandi skriftartegundir. Annað hvort skipti sami skrifari um skrift, eða fleiri hendur komu að verkinu.

Udsmykning

Fyrirsagnir og millifyrirsagnir dregnar stærri.

Örlítið pennaflúr er víða í stöðu griporðs.

Tilføjelser

Með síðari tíma hönd hefur verið bætt við: Nr. 6 á spássíu á 1r,

Vedlagt materiale

Fremst í AM 409 a I-VI 4to er seðill (sjá AM 409 a I 4to) með upplýsingum um feril VI. hluta. Áður lá þessi seðill milli bl. 5 og 6 í AM 409 a VI 4to. Aftan á seðlinum er sennilega brot úr bréfi til Árna Magnússonar.

Historie og herkomst

Herkomst

Skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur til 17. aldar ( Katalog (I) 1889:614-615).

Proveniens

Árni Magnússon fékk handritið í juni 1704 frá Guðmundi Jónssyni í Múla í Fljótshlíð (sbr. seðil).

Bibliografi

Forfatter: Halldór Hermannsson
Titel: Islandica, Jón Guðmundsson and his natural history of Iceland
Omfang: 15
Forfatter: Jón Jónsson
Titel: Krukkspá og Kleykir, Goðasteinn
Omfang: 25
Titel: Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
Redaktør: Jón Árnason
Forfatter: Jón Þorkelsson
Titel: Þjóðsögur og munnmæli, Krukkspá
Omfang: s. 190-200
Titel: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Redaktør: Kålund, Kristian
Forfatter: Már Jónsson
Titel: Árni Magnússon : ævisaga
Forfatter: Jón Þorkelsson
Titel: Þjóðsögur og munnmæli
Forfatter: Þórður Tómasson
Titel: Jón krukkur og Krukkspá, Goðasteinn
Omfang: 23-24
[Metadata]
×
  • Sted
  • Reykjavík
  • Institution
  • Árni Magnússon-instituttet for islandske studier
  • Opbevaringssted
  • Stofnun Árna Magnússonar
  • Håndskriftsamling
  • Safn Árna Magnússonar
  • Katalognummer
  • AM 409 a I-VI 4to
  • XML
  • Vis som XML  
  • Bemærkninger
  • Send feedback om håndskriftet  

[Metadata]